Almennt
Beint í bílinn ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar í seinasta lagi næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Beint í bílinn ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Beint í bílinn ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Við endurgreiðum ekki áskriftir en ef þú kaupir eitthvað annað af síðunni okkar þá hefur þú 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þú hafir ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Beint í bílinn ehf með spurningar.


Ef greiðsla fer ekki í gegn við endurnýjun áskrifta þá áskiljum við okkur rétt til þess að reyna aftur í allt að 360 daga aftur í tímann.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Persónuverndarstefna

Síðast uppfærð: 14. júlí 2026

Ábyrgðaraðili: Beint í bílinn ehf. rekur vefinn beintibilinn.is, vefverslunina og Beint í bílinn öppin fyrir síma og spjaldtölvur. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á askrift@beintibilinn.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Hvernig notum við upplýsingarnar? Eingöngu til að veita þjónustuna: staðfesta áskrift, spila þætti, afgreiða pantanir, birta athugasemdir og halda utan um aðganginn þinn. Við seljum aldrei persónuupplýsingar og notum þær ekki í markaðssetningu þriðja aðila.

Vinnsluaðilar: Google Firebase (aðgangar og gögn), Mux (myndbandsveita), Teya (greiðslumiðlun) og Íslandspóstur (afhending vara). Upplýsingum er ekki deilt með öðrum þriðja aðila.

Réttindi þín: Þú getur óskað eftir afriti af gögnunum þínum, leiðréttingu eða eyðingu aðgangsins hvenær sem er með því að senda póst á askrift@beintibilinn.is. Við svörum innan 30 daga. Þér er einnig heimilt að beina kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).

Varðveisla: Gögnum er eytt þegar aðgangi er lokað, að undanskildum bókhaldsgögnum sem skylt er að varðveita samkvæmt lögum.