Persónuverndarstefna
Síðast uppfærð: 13. október 2026
Hver vinnur með gögnin?
Beint í bílinn (Salvatore ehf.) rekur vefinn beintibilinn.is og Beint í bílinn appið. Hafðu samband á askrift@beintibilinn.is vegna fyrirspurna um persónuvernd.
Hvaða gögn söfnum við?
- Aðgangur: netfang og lykilorð (lykilorð eru geymd dulkóðuð hjá Google Firebase — við sjáum þau aldrei).
- Áskrift og greiðslur: greiðslur fara í gegnum greiðslumiðlunina Teya. Við geymum aldrei kortanúmerið þitt — aðeins síðustu fjóra tölustafi og öruggt greiðslutákn frá Teya til að endurnýja áskriftina.
- Notkun: hvaða þættir eru spilaðir og athugasemdir sem þú skrifar undir þáttum (birtar undir notandanafninu þínu).
- Tæknigögn: almenn notkunar- og villugögn frá Firebase og myndbandsveitunni Mux (t.d. tegund tækis og spilunargæði) til að halda þjónustunni gangandi.
Hvernig notum við gögnin?
Eingöngu til að veita þjónustuna: staðfesta áskrift, spila þætti, birta athugasemdir og halda utan um aðganginn þinn. Við seljum aldrei persónuupplýsingar og deilum þeim ekki með þriðja aðila umfram þá vinnsluaðila sem þjónustan byggir á (Google Firebase, Mux og Teya) og Meta, sjá hér að neðan.
Vafrakökur og auglýsingar
Við auglýsum á Facebook og Instagram. Til að mæla árangur auglýsinganna notum við Meta-pixilinn og Conversions API frá Meta Platforms Ireland. Pixillinn setur vafrakökur í vafrann þinn og sendir Meta upplýsingar um síðuflettingar á vefnum. Þegar keypt er áskrift fær Meta einnig upphæð og áskriftarleið ásamt netfanginu þínu í dulkóðuðu formi (hash), IP-tölu og upplýsingum um vafrann. Meta notar þessar upplýsingar til að birta og mæla auglýsingar. Þú getur takmarkað þetta með því að loka á vafrakökur þriðja aðila í vafranum þínum eða í auglýsingastillingum Facebook og Instagram.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir afriti af gögnunum þínum, leiðréttingu eða eyðingu aðgangsins hvenær sem er með því að senda póst á askrift@beintibilinn.is. Við svörum eins fljótt og hægt er og eigi síðar en innan 30 daga.
Varðveisla
Gögnum er eytt þegar aðgangi er lokað, að undanskildum bókhaldsgögnum sem okkur ber að varðveita samkvæmt lögum.
